Félag um skjalastjórn
Pósthólf 8731
128 Reykjavík irma@irma.is kt. 580189-2029
Markmið Félags um skjalastjórn er að efla þekkingu og skilning á skjalastjórn hjá einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum; ennfremur að efla tengsl þeirra sem starfa við skjalasöfn og stuðla að samvinnu þeirra á milli. Félagið stendur fyrir námstefnum og fræðslufundum um ýmsa þætti skjalastjórnar. Aðild að félaginu er opin öllum þeim sem eru hlynntir markmiðum félagsins.
Félagið var stofnað 6. desember 1988.
Hvað er skjal?
„Þegar talað er um skjöl og skráðar heimildir í lögum þessum er átt við hvers konar gögn, jafnt rituð sem í öðru formi, er hafa að geyma upplýsingar og hafa orðið til, borist eða verið viðhaldið við starfsemi á vegum stofnunar eða einstaklings.“
(Lög um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985 breytt með lögum nr. 123/2008)
Hvað er skjalastjórn?
Kerfisbundin stjórn á skjölum frá því að þau verða til í stofnun eða fyrirtæki, eða berast að, og þar til þeim er eytt eða sett í varanlega geymslu. Skjalastjórn felur í sér flokkun og merkingu skjala, dreifingu, vistun, endurheimt, stjórn á framleiðslu og notkun eyðublaða og skýrslna og gerð skjalastjórnaráætlana.