greinar Minimize

Fréttir

3. mars 2009
Ávarp formanns Félags um skjalastjórn á afmælisráðstefnu 26. febrúar 2009

Ingibjörg Hallbjörnsdóttir, formaður Félags um skjalastjórn setti ráðstefnu sem haldin var á Grand Hótel í Reykjavík þann 26. febrúar 2009 til að fagna 20 ára afmæli Félags um skjalastjórn.

Meira...
8. desember 2008
Ávarp formanns Félags um skjalastjórn í 20 ára afmælishófi

Ingibjörg Hallbjörnsdóttir, formaður Félags um skjalastjórn flutti ávarp í hófi sem haldið var í Þjóðmenningarhúsinu þann 6. desember 2008 til að fagna 20 ára afmæli Félags um skjalastjórn.

Meira...
20. febrúar 2008
Skjalastjórn og skjalavarsla - tvær hliðar á sama peningi
Í framhaldi af umræðum nýlega á póstlista félagsins um skjalavörslu er rétt að undirstrika þann mun sem er á skjalastjórn og skjalavörslu. Skjalastjórn (e. records management) sem starfsgrein er tiltölulega ný af nálinni og hugtakið skjalastjórn kom ekki til sögunnar fyrr en upp úr miðri síðustu öld. Nokkrar útgáfur eru til af hugtakinu en eftirfarandi skilgreiningu er að finna á vefsíðu Félags um skjalastjórn:

„Skjalastjórn er kerfisbundin stjórn á skjölum frá því að þau verða til í stofnun eða fyrirtæki eða berast að og þar til þeim er eytt eða komið fyrir í varanlegri geymslu. Skjalastjórn felur í sér flokkun og merkingu skjala, dreifingu, vistun, endurheimt, gerð örefnis, ennfremur stjórn á framleiðslu og notkun eyðublaða, skýrslna, gerð geymslu- og öryggisáætlana og fræðslu starfsfólks í stofnunum um skjalamál“ (Félag um skjalastjórn, 2008).

Meira...
18. febrúar 2008
Heimsókn til VR 8. nóvember 2007

Fræðslufundur hjá VR 8. nóvember 2007Innleiðing á rafrænu skjalastjórnunarkerfi hjá VR hófst haustið 2005. Aðkoma að verkefninu var spennandi og gaman að fá að taka þátt frá grunni. Þegar tekið er við slíku búi þarf að gera forrannsókn þ.e. gera sér grein fyrir hvaða gögn er verið að meðhöndla, hvernig eru þau skráð, hvernig geymd o fl. og var það gert.  Fundað var með hverju sviði innan VR og þessir þættir kortlagðir. Eftir þarfagreiningu og skoðun á kerfum varð OneSystems fyrir valinu. 

Meira...
18. febrúar 2008
Fjölmenni á notendaráðstefnu Hugvits 2007
Hugvit hélt fjölmenna tveggja daga notendaráðstefnu í annað sinn 4.- 5. október síðastliðinn. Á annað hundrað GoPro-notenda og sölu- og þjónustuaðila frá átta löndum sátu ráðstefnuna. Meginmarkmið ráðstefnunnar var að skapa vettvang til að miðla þekkingu og reynslu milli hinna ýmsu hópa sem notast við mála- og skjalastjórnunarhugbúnaðinn GoPro. Þannig voru kynningar frá notendum kerfisins auk kynninga á nýútkomnum útgáfum hugbúnaðarins frá Hugviti.
Meira...

    
 Fréttabréf Minimize


    
Copyright (c) 2012 Félag um skjalastjórn  | Innskráning  
 
   Minimize


    
Umboðsmaður Alþingis
Umboðsmaður Alþingis
Umboðsmaður Alþingis
Umboðsmaður Alþingis
 Viðburðir Minimize