Innleiðing á rafrænu skjalastjórnunarkerfi hjá VR hófst haustið 2005. Aðkoma að verkefninu var spennandi og gaman að fá að taka þátt frá grunni. Þegar tekið er við slíku búi þarf að gera forrannsókn þ.e. gera sér grein fyrir hvaða gögn er verið að meðhöndla, hvernig eru þau skráð, hvernig geymd o fl. og var það gert. Fundað var með hverju sviði innan VR og þessir þættir kortlagðir. Eftir þarfagreiningu og skoðun á kerfum varð OneSystems fyrir valinu.
Kerfið hentar starfsemi VR mjög vel þar sem það vinnur vel með þeim kerfum sem fyrir eru í notkun þ.á m. þjónustuveri félagsins. Þetta hefur verið til mikilla bóta fyrir VR þar sem ekki hefur verið unnið í samræmdu rafrænu skjalastjórnunarkerfi áður. Unnið er í mörgum smærri kerfum og hefur OneSystems náð að samþætta þau kerfi, fyrir utan að koma á alhliða rafrænni skjalastjórnun innan félagsins.
Innleiðingin hefur gengið vel til þessa. Lykilþáttur í innleiðingu sem þessari er að fá starfsfólkið til að tileinka sér ný og breytt vinnubrögð, að hafa stuðning yfirmanna frá upphafi verkefnisins, að stofna stýrihóp fyrir verkefnið sem leiðir vinnuna og gera sér grein fyrir að slík breyting gengur ekki yfir á einni nóttu og er aldrei lokið. Hægt verður að nálgast glærur frá heimsókninni á læstu heimasvæði félagsmanna á www.irma.is innan skamms.