Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður félagsmönnum. Nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn til að sjá allt efni sem þar er að finna.
Ábendingar um efni og upplýsingar á vefinn eru vel þegnar - irma@irma.is
Fréttir
Aðalfundur félagsins var haldinn 28. apríl 2011 í sal Þjóðskjalasafns Íslands. Á fundinum voru tvö lokaverkefni í bókasafns- og upplýsingafræði kynnt, en Guðbjörg Eva Friðgeirsdóttir kynnti MA-ritgerð sína; Markviss þekkingarstjórnun með áherslu á upplýsingakerfi, innra skipulag og ferla í skipulagsauði. Jónella Sigurjónsdóttir kynnir meistaraprófsritgerð sína; "Maður þarf að sjá tilganginn." Viðhorf og þarfir ríkisstarfsmanna gagnvart skjalamálum.
Á fundinum var einnig farið yfir hefðbundin aðalfundarstörf og ný stjórn kosin.
Sigríður Klingenberg kom og sló á létta strengi.
Meðlimir í stjórn félagsins 2011-2012 eru:
Stjórn:
Daldís Ýr Guðmundsdóttir, formaður
Guðrún Birna Guðmundsdóttir, varaformaður
Njörður Sigurðsson, ritari
Sólveig Magnúsdóttir, gjaldkeri
Guðbjörg Eva Friðgeirsdóttir, meðstjórnandi
Eva Ósk Ármannsdóttir, varamaður
Ritnefnd:
Guðbjörg Eva Friðgeirsdóttir, formaður
Sigríður Einarsdóttir, vefstjóri
Hrafnhildur G. Stefánsdóttir
Fræðslunefnd:
Guðrún Birna Guðmundsdóttir, formaður
Arna Eggertsdóttir
Inga Dís Karlsdóttir