felagsadild.JPG

Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður félagsmönnum. Nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn til að sjá allt efni sem þar er að finna.

Ábendingar um efni og upplýsingar á vefinn eru vel þegnar - irma@irma.is

 Spakmæli dagsins Minimize

Ef manni mistekst skipulagning, þá hefur maður skipulagt mistök.
Spakmæli

  

 Fréttir Minimize

Fréttir

26. maí 2011
Málþing um frumvarp að nýjum upplýsingalögum

Málþing um frumvarp að nýjum upplýsingalögum var haldið þriðjudaginn 10 maí í fyrirlestrarsal Borgarskjalasafns, Tryggvagötu 15.

Málþingið var haldið í samstarfi við Borgarskjalasafn Reykjavíkur og fjallaði um frumvarp að nýjum upplýsingalögum sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Í frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar á lögum um Þjóðskjalasafn. Meðaæ breytinga skv. frumvarpinu er að gildissvið upplýsingalaga verður víkkað með þeim hætti að þau taki til fleiri aðila en nú er. Einnig verður hægt að skilgreina fleiri skjöl sem vinnuskjöl, stjórnvöld geta lokað ákveðnum skjölum í lengri tíma og að þjóðskjalavörður getur lokað ákveðnum skjölum í 110 ár.

Fyrirlesarar voru:

Elín Ósk Helgadóttir, lögfræðingur hjá forsætisráðuneyti: "Er frumvarp til upplýsingalaga til þess fallið að auka upplýsingarétt almennings?"

Svanhildur Bogadóttir, Borgarskjalavörður: "Í þágu almannahagsmuna"

Eirkur G. Guðmundsson, Sviðsstjóri upplýsingasviðs Þjóðskjalasafns Íslands: "Aukið aðgengi?"

Sigurður Már Jónsson, Blaðamannafélag Íslands: "Allt uðð á borðið"

Fundarstjóri var Inga Dís Karlsdóttir

 

Athugasemdir

    
Copyright (c) 2012 Félag um skjalastjórn  | Innskráning  
 
  


  
 Viðburðir Minimize

 
       


  
Heimsókn í Landsbankann
Heimsókn í Landsbankann
Umboðsmaður Alþingis
Heimsókn í Landsbankann