felagsadild.JPG

Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður félagsmönnum. Nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn til að sjá allt efni sem þar er að finna.

Ábendingar um efni og upplýsingar á vefinn eru vel þegnar - irma@irma.is

 Spakmæli dagsins Minimize

Góð áætlun sem þegar er hrundið í framkvæmd er betri en fullkomin áætlun sem byrjað verður á í næstu viku.
Helmut Weckerle

  

 Fréttir Minimize

Fréttir

21. september 2011
Fyrsti fræðslufundur vetrarins

Fyrsti fræðslufundur vetrarins var haldinn fimmtudaginn 15. september.  Fræðslunefndin ákvað að reyna nýtt fyrirkomulag og byrja fræðslufundinn á léttum veitingum kl. 11:45 og hófst svo erindið kl. 12:10. Þótti þetta takast afar vel og myndaðist góð stemmning í hópnum áður en formleg dagskrá hófst. Á fundinn mættu 35 manns.

Halla Björg Baldursdóttir sem er forstöðumaður rafrænnar stjórnsýslu hjá Þjóðskrá Íslands var með erindið að þessu sinni og nefndist það „Tekið til hendinni“.  Halla fjallaði þar um hvernig sameinaðir voru þrír vefir, fasteignaskra.is, vegabref.is og thjodskra.is í einn vef: skra.is. Hún lýsti því hvernig í nokkrum skrefum var tekið til hendinni og þjónusta Þjóðskrár Íslands færð í auknu mæli á rafrænt form.  Einnig sagði hún frá því hvernig vefurinn island.is var þróaður áfram eftir að hann var færður frá forsætisráðuneytinu til Þjóðskrár Íslands.

Við þökkum Höllu Björg fyrir mjög áhugavert og fræðandi erindi.
Glærurnar hennar Höllu Bjargar eru komnar inn í glærusafnið sem er að finna hér: Fræðsluerindi - glærur
Myndir frá fræðsluerindinu eru komnar á síðuna og má finna þær hér: Fræðsluerindi - Myndir
 

Athugasemdir

    
Copyright (c) 2012 Félag um skjalastjórn  | Innskráning  
 
  


  
 Viðburðir Minimize

 
       


  
Heimsókn í Landsbankann
Heimsókn í Landsbankann
Umboðsmaður Alþingis
Umboðsmaður Alþingis