Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður félagsmönnum. Nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn til að sjá allt efni sem þar er að finna.
Ábendingar um efni og upplýsingar á vefinn eru vel þegnar - irma@irma.is
Fréttir
Næsta föstudag mun námsbraut í bóksafns- og upplýsingafræði standa fyrir málþingi. Málþingið er hluti af hátíðarhöldum í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands og einnig er haldið upp á það að fyrir 55 árum hófst kennsla í bókasafns- og upplýsingafræði við skólann.
Megintilgangurinn með málþinginu er að skapa fagaðilum vettvang til að kynnast nýbreytni í rannsóknum í greininni.
Mörg spennandi erindi verða flutt á sviði skjalstjórnar sem og annarra sviða fagsins.
Þekking til framtíðar – Nýbreytni og þróun í rannsóknum í bókasafns- og upplýsingafræði
Málþingið er haldið á vegum námsbrautar í bókasafns- og upplýsingafræði, föstudaginn 14. október 2011 frá kl. 10.00-17.00, í fyrirlestrasal á 2. hæði í Þjóðarbókhlöðu.
10.00-10.05: Ágústa Pálsdóttir. Setning málþings. 10.05-10.20: Halla Svavarsdóttir. Er vilji allt sem þarf? Skólasafnið og samstarf bókasafns- og upplýsingafræðinga, fagaðila í tölvum og kennara. 10.20-10.35: Stefanía Júlíusdóttir. Hér í sveitinni eru mörg þúsund bækur... 10.35-10.50: Erlendur Antonsson. ,,Gúglið“ og þér munuð finna? : rafræn upplýsinganotkun háskólanema. 10.50-11.05: Daldís Ýr Guðmundsdóttir. Vandaðir stjórnsýsluhættir. 11.05-11.20: Kristín Thorarensen. er dagur upplýsingalæsis? Viðhorf skólastjóra og bókasafns- og upplýsingafræðinga til hlutverks og stöðu skólasafna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. 11.20-11.35: Svanhildur Bogadóttir. Að varðveita þjóðarsöguna … eða hvað?Um varðveislu skjala um líf og störf einstaklinga. 11.35-11.50: Siggerður Ólöf Sigurðardóttir. Skólasöfn grunnskólanna og upplýsingalæsi; Mikilvæg til að bjóða upp á fjölbreytt nám sem er í takti við þarfir nútíma samfélags. 11.50-12.05: Sigríður Andrea Ásgeirsdóttir. Að komast í fyrsta sætið” - Rannsókn á ástæðum innleiðingar öryggisstjórnunarstaðalsins ISO 7001 í íslenskum fyrirtækjum. 12.05 – 12.45 Matarhlé. 12.45-13.00: Ágústa Pálsdóttir. ,,Þekkingin er einskis virði ef henni er ekki miðlað“. 13.00-13.15: Harpa Björt Eggertsdóttir. Hver er staðan? Skjalastjórn og þekkingarstjórnun hjá íslenskum háskólum. 13.15-13.30: Helgi Sigurbjörnsson. Ólöglegt niðurhal og höfundaréttur: viðhorf notenda skjalaskiptasíðna til höfundaréttarlaga. 13.30-13.45: Jóhanna Gunnlaugsdóttir. Gegnsæi eða leyndarhyggja: Orðræðan í fjölmiðlunum. 13.45-14.00: Heiða Rúnarsdóttir. Þorir þú á bókasafnið? Lestrarvenjur 10-15 ára nemenda og leiðir til að efla lestur. 14.00-14.15: Ragna Haraldsdóttir. Þekkingarauður starfsmanna – verkfæri skipulagsheilda. 14.15-14.30: Sigríður Einarsdóttir. Upplýsingar hafa margar hliðar. Upplýsingahegðun foreldra einhverfra barna. 14.30-14.45: Arnhildur Arnaldsdóttir. Gæði í brennidepli. Innleiðing á gæðastjórnunarkerfi hjá Staðlaráði Íslands. 14.45-15.00: Anna María Sverrisdóttir. Heimildaleitir í rafrænum gagnasöfnum: eigindleg rannsókn meðal meistaranema við Félagsvísindasviði Háskóla Íslands. 15.00-15.15 Kaffihlé. 15.15-15.30: Elín Dögg Guðjónsdóttir. Skjalastjórnun hjá heilsugæslustöð og öldrunarheimili. 15.30-15.45: Vega Rós Guðmundsdóttir. Upplýsingahegðun nemenda við Listaháskóla Íslands. 15.45-16.00: Sigurlaug Rósa Guðjónsdóttir. Í upphafi skal endinn skoða. Rafræn skjalastjórn og langtímavarðveisla gagna hjá opinberum stofnunum og fyrirtækjum. 16.00-16.15: Sólveig Lind Ásgeirsdóttir. Skrá yfir ítalskt efni á ítölsku. 16.15-16.30: Margrét Eva Árnadóttir. Samspil skjalastjórnunar og gæðastjórnunar. 16.30-16.45: Steinunn Aradóttir. Upplýsingahegðun þjónustufulltrúa hjá sveitarfélögum. 16.45-17.00: Kristjana Knudsen. Upplýsingahegðun aðstendenda alzheimerssjúklinga. Málþingi lýkur.