Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður félagsmönnum. Nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn til að sjá allt efni sem þar er að finna.
Ábendingar um efni og upplýsingar á vefinn eru vel þegnar - irma@irma.is
Fréttir
Umræðan um breytingu á fagheiti bókasafns- og upplýsingafræðinga hefur komið upp oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Nú er svo komið að Upplýsing og SBU ætla að halda fund um málið þar sem kosið verður um tillögu að nýju fagheiti, upplýsingafræðingur.
Hér að neðan má sjá auglýsingu sem send var út frá félögunum:
SBU og Upplýsing boða til fundar um ímynd bókasafns- og upplýsingafræðinga í Þjóðarbókhlöðu, miðvikudaginn 26. október kl. 17:00 Ímyndarhópur félaganna hefur unnið hörðum höndum og kemur nú fram með tillögu um að fagheitið "Upplýsingafræðingur" verði notað fyrir stéttina. Þannig er hægt að sameinast um eitt opinbert fagheiti einstaklinga með sömu menntun óháð vinnustað og starfi. Tilgangur fundarins er að kynna forsendur og að lokum greiða atkvæði um tillöguna. Á fundinum verður farið yfir þau rök sem liggja að baki tillögunni og mikilvægi þess að breyta og einfalda fagheitið. Starfi ímyndarhópsins verður lýst í stuttu máli og leitað eftir hugmyndum félagsmanna um framhaldið. Atkvæðarétt hafa allir fundarmenn sem uppfylla kröfur sbr. lög nr. 97/1984 og nr. 21/2001 um fjalla um starfsheitið bókasafns- og upplýsingafræðingur. Dagskrá: 1. Upplýsingafræðingur: Samræmt fagheiti einstaklinga með sömu menntun óháð vinnustað. Ímyndarhópur Upplýsingar og SBU kynna. 2. Kosning um að taka upp fagheitið Upplýsingafræðingur. 3. Næstu skref. 3. Önnur mál. Félagsmenn eru því eindregið hvattir til að mæta og taka þátt í þessari mikilvægu ákvörðun. Fyrir hönd Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og Upplýsingar, fagfélags um bókasafns- og upplýsingafræði Sveinn Ólafsson, formaður SBU Hrafnhildur Hreinsdóttir, formaður Upplýsingar