Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður félagsmönnum. Nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn til að sjá allt efni sem þar er að finna.
Ábendingar um efni og upplýsingar á vefinn eru vel þegnar - irma@irma.is
Fréttir
Á fræðslufundinum í síðustu viku var Marta Birna Baldursdóttir með erindi. Marta Birna er gæðastjóri hjá innanríkisráðuneytinu en starfaði áður hjá samgönguráðuneytinu þegar ákveðið var að sameina það dómsmálaráðuneytinu og búa til eitt innanríkisráðuneyti.
Hún sagði okkur frá ferlinu, allt frá því að ákvörðun um sameiningu var tekin, hvernig undirbúningurinn var skipulagður, sameining skjalasafnanna undirbúin og hvernig málaskrárnar voru sameinaðar.
Þetta var afar fróðlegt og áhugavert erindi og við þökkum Mörtu Birnu kærlega fyrir.