Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður félagsmönnum. Nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn til að sjá allt efni sem þar er að finna.
Ábendingar um efni og upplýsingar á vefinn eru vel þegnar - irma@irma.is
Fréttir
17. nóvember síðastliðinn var Elín Ósk Helgadóttir lögfræðingur hjá forsætisráðuneytinu með fræðslufund þar sem hún fjallaði um reglur um skráningu og ábyrgð skjalastjóra. Var þetta mjög áhugaverður fundur og var mætingin góð eða 42.
Í erindi sínu fjallaði Elín Ósk um aga- og formleysi í vinnubrögðum og hvernig það fæli í sér m.a. hættu á að hagsmunum væri ekki haldið til haga og aukna hættu á brotum á réttarreglum stjórnsýsluréttar. Hún fjallaði um skráningu mála og munnlegra upplýsinga með vísun í lög, einnig um sérreglur og ábyrgð skjalastjóra samkvæmt lögum.
Við þökkum Elínu Ósk kærlega fyrir skemmtilegt og áhugavert erindi.
Glærurnar frá fundinum má nálgast hér: Glærur