Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður félagsmönnum. Nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn til að sjá allt efni sem þar er að finna.
Ábendingar um efni og upplýsingar á vefinn eru vel þegnar - irma@irma.is
Fréttir
Jólafundur félagsins var haldinn 8. desember. Fundurinn var eins og vanalega á léttum og skemmtilegum nótum og var boðið upp á góðar veitingar.
Anna Lóa Ólafsdóttir náms- og starfsráðgjafi var með erindi sem hún kallaði Hamingjan er hér þar sem hún talaði um jákvæðni og hvernig hægt er að finna hamingjuna.
Lísbet Einarsdóttir frá Lectura var svo með erindið Að skilja hvor aðra og hristi hún heldur betur upp í þátttakendum með skemmtilegum persónugreiningum og ýmsum verkefnum sem þurfti að leysa.
Þetta var frábær jólafundur og var mikið hlegið.
Myndir frá fundinum eru í ritskoðun og verða aðgengilegar mjög fljótlega.